Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum bræðurnir Jónas Breki og Bergur Hrafn
Jónas Breki fæddist föstudaginn 26. janúar 2007 á fæðingadeild Landsspítalans. Hann var 13 merkur og 51 cm að lengd.
Bergur Hrafn fæddist miðvikudaginn 3. júní 2009 í Hreiðrinu á Landsspítalanum. Hann var 13 merkur og 51 cm alveg eins og stóri bróðir.
Mamma okkar heitir Hulda Guðrún og pabbi okkar heitir Guðmundur Þór og þau eru alveg að springa úr hamingju :)
Lykilorðið á síðuna er nafnið á sætasta voffanum ;)
Jónas Breki 21 mánaða :)
Jónas Breki er Vatnsberi
20. Janúar - 18. Febrúar
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Bergur Hrafn er Tvíburi
21. maí - 21. júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.